ATH – HÉR AÐ NEÐAN ER LJÓSMYND AF TYPPI
ÞETTA ER EKKI EITTHVAÐ SEM ÞÚ ÆTTIR AÐ SKOÐA EF ÞÚ ERT Í ALMANNARÝMI TIL AÐ SÆRA EKKI BLYGÐUNARKENND VIÐSTADDRA.
Markmið verkefnisins er að auka sýnileika typpisins, aflétta skömm, fræða, opna umræðuna og sýna fjölbreytileika typpanna.
Að því sögðu,
gjörðu svo vel.
HEY, eitt hérna, – Vissirðu að ég verð með uppistand í febrúar? Þú getur keypt miða hér.
„
Ég er 31 árs gamall.
Mig langar að taka þátt því mér finnst þetta mjög áhugavert verkefni og finnst að kynfæri eigi ekki að vera eitthvað sem þurfi að fela sérstaklega eða skammast sín fyrir og fólk á að geta talað um þau opinskátt.
Samband mitt við typpið á mér var lengi mjög erfitt. Mér fannst það lengi vel svo lítið og átti oft mjög erfitt með að fara í sturtu með öðrum eftir sund og íþróttir t.d. En í seinni tíð, sérstaklega eftir að ég byrjaði að stunda kynlíf þá hef ég lært að vera mjög ánægður með typpið á mér. Ég elska núna að sýna það, bæði konum og körlum og er hæst ánægður með það í dag.
“