0-6 ára; Kynfæri, líkamsvirðing & nekt

12:13

1.699kr.

Lýsing

ATH – ÞÚ HEFUR AÐGANG AÐ ÞESSU MYNDBANDI Í 365 DAGA FRÁ KAUPUM

Myndband þetta er eitt af yfir tuttugu myndböndum í seríunni „Kjaftað um kynlíf – foreldrar fræða börn sín“ sem byggir á uppseldri samnefndri handbók eftir Siggu Dögg kynfræðing.

Myndböndunum er skipt eftir aldri barnsins en í þetta myndband er eitt af sex myndböndum sem fræða foreldra um hvað skuli ræða og hvernig við börn á aldrinum 0-6 ára.

Þannig að ef þú ert foreldri barns á þessum aldri, þá er þetta myndband fyrir þig!

Af hverju ættir þú að fræða barnið þitt um kynlíf?

Börn fæðast sem kynverur en fræðast um kynlíf og kynverund út frá ýmsu í umhverfi sínu. Það gera sér kannski ekki margir grein fyrir því að upphaf kynfræðslunnar og mótun kynverundar á sér stað um leið og þú tekur nýfætt barnið þitt í faðminn, kyssir það og knúsar. Börn læra af snertingu, umræðum um líkamann og af samböndum fólks í kringum það.  Kynfræðsla er því ferli sem helst út lífið á öllum æviskeiðum og er samsett úr mörgum ólíkum þáttum. Það má ímynda sér að hver þáttur sé einn kubbur, sem hægt er að raða saman á margs konar hátt. Það er því engin ein rétt eða röng leið til að ræða og fræða um kynlíf, því öll erum við einstök.

Það sem mestu máli skiptir er að hefja samræðurnar og það er alltaf réttur tími!

Í þessu myndbandi verður fjallað um eftirfarandi málefni:

Kynfæraumhirða og kynfæraheiti.

Það gera sér kannski ekki margir grein fyrir því að upphaf kynfræðslunnar og mótun kynverundar á sér stað um leið og þú gægist niður á kynfæri nýfædds barns þíns til að átta þig á kyninu, tekur það í faðminn, kyssir það og knúsar. Viðhorf þitt og hegðun gagnvart barninu mótast gjarnan af kyni þess og því eru fyrstu skrefin í samskiptum þínum og barnsins mikilvægur grunnur kynfræðslunnar. Þú hefur eflaust gert þér í hugarlund hvaða orð þú munt nota yfir kynfæri barnsins en í mörgum fjölskyldum er hefð fyrir ákveðnum gælunöfnum yfir kynfæri barna. Það er ágætt að staldra við og velta þessu fyrir sér, því á hverjum degi næstu mánuðina verður þú að skoða kynfæri barnsins.

Nekt, má það? Mörg börn á leikskólaaldri eru forvitin um líkama sinn og annarra. Þau sýna klósettferðum og jafnvel úrgangi (kúk og pissi) mikinn áhuga, fylgjast með líkömum og vilja gjarnan sjálf vera nakin. Þetta er eðlilegur hluti af þroskaferli barnsins en vissulega mega hinir fullorðnu setja mörk um hvað þeim þykir vera í lagi og hvað ekki.

Líkamsvirðing og fyrirmyndir.

Þér gæti einnig líkað við…